HH Ráðgjöf Bókhaldsþjónusta hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu á sviði bókhaldsmála. Starfsfólk HH Ráðgjafar býr yfir hagnýtri menntun ásamt mikilli reynslu af alhliða bókhaldsvinnu.
Í mörgum tilfellum er hagstæðara fyrir fyrirtæki að úthýsa að hluta eða öllum bókhaldsmálum sínum. Markmið HH Ráðgjafar er að aðlaga sig að þörfum viðskiptavinarins og því geta viðskiptavinir okkar kosið að taka einungis hluta af þjónustuframboði okkar eða heildarlausn eftir því hvað hentar best.
Við veitum viðskiptavinum okkar m.a. eftirtalda þjónustu:
Sjáum um merkingar fylgiskjala, færslu bókhalds og afstemmingar fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og einstaklinga með rekstur.
Þegar almennt bókhald hvers virðisaukatímabils hefur verið fært er gengið frá vsk skýrslu.
Tökum að okkur launavinnslu fyrir fyrirtæki. Við göngum frá launaseðlum og sendum til starfsmanna eða fyrirtækis, göngum frá skilagreinum vegna staðgreiðsluskatts, tryggingagjalds, lífeyrissjóða, stéttarfélaga osfrv. Í lok árs sjáum við um skil á launaframtali og sendum launamiða.
Útbúum reikninga, sendum út og gerum greiðsluseðla.
Sjáum um uppgjör, mánaðarleg rekstraruppgjör, árshluta og ársuppgjör og gerð ársreikinga og skil til viðkomandi skattstofu og ársreikningaskrá svo og viðskiptabanka sé þess óskað.
Göngum frá skattframtölum fyrir einstaklinga með rekstur og lögaðila og skilum til viðkomandi skattstjóra, sækjum um framtalsfresti, sjáum um kærur ef á þarf að halda osfrv.
Kostir þess að nýta HH Ráðgjöf Bókhaldsþjónustu eru m.a.:
Með því að úthýsa bókhaldsmálum getur þú og þitt fyrirtæki varið tíma sínum í önnur mikilvæg verkefni og treyst því að bókhaldið er í góðum höndum.
Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði bókhaldsmála með mikla reynslu af alhliða bókhaldi ásamt hagnýtri menntun.
Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð!