Deildarstjóri- Skurðdeild
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Deildarstjóri- Skurðdeild

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða deildarstjóra á skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfið veitist frá 1. júní eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 90% eða eftir samkomulagi, um er að ræða dagvinnu og bakvaktir þess á milli.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Deildarstjóri ber ábyrgð á og tekur þátt í daglegri starfsemi á skurðstofu. Á deildinni starfa að jafnaði 3 hjúkrunarfræðingar, einn fastur skurðlæknir og svæfingalæknir og einnig koma aðrir sérfræðingar reglulega. Skurðhjúkrunarfræðingur sinnir útköllum á skurðstofu og sér um undirbúning sjúklinga fyrir aðgerðir inni á skurðstofu, aðstoðar við framkvæmd aðgerða og sér um verkfæri og tækjabúnað sem við á.Vegna minnkaðrar starfsemi skurðdeildarinnar yfir orlofstímann felst í starfinu afleysing á öðrum deildum Umdæmissjúkrahússins í samráði við viðkomandi.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis og sérnáms í skurðhjúkrun æskilegt. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Sé sótt um í opinni starfsumsókn ber að tilgreina við hvað viðkomandi óskar að starfa og hvar. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 90%

Umsóknarfrestur er til og með 12.03.2026

Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Kristinsdóttir

Tölvupóstur: sigridur.kristinsdottir@hsa.is

Jón H H Sen

Tölvupóstur: jon.sen@hsa.is

SÆKJA UM Neskaupstadur
  • Starf skráð:

    03.Mar 2026

  • Umsóknarfrestur:

    12.Mar 2026

Tegund starfs
  • Hlutastarf
Starfaflokkur
Hæfni/reynsla
DEILDU STARFINU