Endurskoðunar- og bókhaldsstofa á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða viðskiptafræðing til starfa.
Um fullt starf er að ræða.
Viðkomandi þarf að búa yfir aga og sjálfstæði í vinnubrögðum, talnagleggni og góðu frumkvæði ásamt því að hafa haldbæra reynslu og þekkingu á bókhaldi.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Uppgjör fyrirtækja og framtalsskil fyrirtækja
- Þátttaka í endurskoðunarverkefnum
- Færsla bókhalds og afstemmingar
- Skil á virðisaukaskýrslum
- Reikningagerð
- Launavinnsla
- Önnur tengd störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði kostur en ekki skilyrði
- Þekking og reynsla af notkun bókhaldskerfisins DK eða sambærilegu kostur
- Reynsla af sambærilegum störfum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Rík hæfni í mannlegum samskiptum
- Nákvæm og vönduð vinnubrögð
Íris Bettý Alfreðsdóttir Frederiksen ráðgjafi hjá HH Ráðgjöf Ráðningarþjónustu hefur umsjón með ráðningu í starfið og veitir frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða í tölvupósti hhr@hhr.is