

Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða teymisstjóra heimahjúkrunar á Egilsstöðum, um tvær stöður er að ræða og er starfshlutfall 70% með möguleika á viðbótar starfsprósentu á heilsugæslu. Staðan veitist frá 1.maí 2026 eða eftir samkomulagi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er -70%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Björnsdóttir
Tölvupóstur: gudbjorg.bjornsdottir@hsa.is
Jónína Guðrún Óskarsdóttir
Tölvupóstur: jonina.g.oskarsdottir@hsa.is