Yfirmatráður á Bergi
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Yfirmatráður á Bergi

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða yfirmatráð í eldhúsið á Bergi hjúkrunarheimili í Bolungarvík. Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er á vöktum frá 8-14 og aðra hverja helgi. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund. Á Bergi starfar samhentur og glaðlyndur hópur þar sem lögð er áhersla á samvinnu og fagmennsku. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. júní en annars eftir samkomulagi.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Matargerð í mötuneyti og gerð matseðla. Innkaup og umsjón með matarbirgðum. Verkstjórn aðstoðarstarfsfólks. Umsjón með þrifum, tækjum og búnaði í eldhúsi.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla sem matráður eða úr sambærilegu starfi.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 300 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 60%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir
Svala Björk Einarsdóttir

Tölvupóstur: svala.einarsdottir@hvest.is

SÆKJA UM Bolungarvik
  • Starf skráð:

    09.Apr 2026

  • Umsóknarfrestur:

    04.May 2026

Tegund starfs
  • Hlutastarf
Starfaflokkur
  • Matreiðsla
Hæfni/reynsla
  • Matreiðsluiðnaður
DEILDU STARFINU

Sambærileg störf