

Við leitum að reyndum bókara fyrir endurskoðunarstofu á höfuðborgarsvæðinu.
Um fullt starf er að ræða.
Viðkomandi þarf að búa yfir haldbærri reynslu á sviði bókhalds, vera sjálfstæður í starfi og eiga gott með mannleg samskipti.
Hulda Helgadóttir ráðgjafi hjá HH Ráðgjöf hefur umsjón með ráðningu í starfið og veitir frekari upplýsingar ef óskað er í síma 561 5900 eða í tölvupósti hhr@hhr.is