Móttökuritari - Heilsugæsla
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Móttökuritari - Heilsugæsla

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara á heilsugæsluna á Djúpavogi. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi og staðan veitist frá 1. júní næstkomandi.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku skjólstæðinga heilsugæslunnar. Daglegt uppgjör sjóðvéla. Afhending lyfjapantana. Húsumsjón og þrif á heilsugæslustöðinni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Krafist er tölvukunnáttu, tölulæsis og ríkrar þjónustulundar. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin og kunnátta í ensku og fleiri tungumálum æskileg. Almennra ökuréttinda krafist.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026

Nánari upplýsingar veitir
Eygerður Ósk Tómasdóttir

Tölvupóstur: eygerdur.o.tomasdottir@hsa.is

SÆKJA UM Djúpivogur
  • Starf skráð:

    11.May 2026

  • Umsóknarfrestur:

    15.May 2026

Tegund starfs
  • Fullt starf
Starfaflokkur
  • Almenn Skrifstofustörf
  • Móttaka
  • Ritari
  • Símsvörun
  • Skráning og vinnsla
Hæfni/reynsla
  • Gestamóttaka / ritari
DEILDU STARFINU

Sambærileg störf