Sjúkraliði
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða á Hjúkrunarheimilið Dyngju í framtíðarstarf. Starfshlutfall er 80-100% eða skv. nánara samkomulagi.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Fagleg vinna sjúkraliða á hjúkrunarheimili. Sjúkraliðar vinna með breiðum hópi skjólstæðinga. Þetta er kjörið tækifæri fyrir sjúkraliða sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu í hjúkrun.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslensk sjúkraliðaréttindi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.06.2026

Nánari upplýsingar veitir
Bríet Magnúsdóttir

Tölvupóstur: briet.magnusdottir@hsa.is

Sími: 470-3040

SÆKJA UM Egilsstaðir
  • Starf skráð:

    18.May 2026

  • Umsóknarfrestur:

    03.Jun 2026

Tegund starfs
  • Fullt starf
  • Hlutastarf
Starfaflokkur
  • Sjúkraliði
Hæfni/reynsla
DEILDU STARFINU

Sambærileg störf