

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í hlutastarf sölufulltrúa 70% starfshlutfall , í verslun okkar á Smáratorgi.
Starfið felur í sér móttöku viðskiptavina, ráðgjöf og sölu í verslun með áherslu á tengisölu, skýrar og gagnlegar upplýsingar um vörur og faglega þjónustu.
Við leggjum áherslu á að viðkomandi sé skipulögð(ur), ábyrg(ur) og sýni frumkvæði í eftirfylgni og samskiptum við viðskiptavini.
Lín Design er Íslenskt hönnunarfyrirtæki sem hefur í 21 ár sérhæft sig í þróun og framleiðslu á rúmfötum, heimilisvörum og gjafavöru.
Við leggjum áherslu á fallega hönnun, vönduð efni og hlýleg samskipti - bæði við siðskiptavini og innan teymisins.