

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraflutningamann í afleysingu á starfsstöð HSA á Seyðisfirði til að sinna sjúkraflutningum á vöktum en starfsfyrirkomulag og starfshlutfall er samningsatriði. Um áhugavert og fjölbreytt starf er að ræða. Áhugasamir, konur jafnt sem karlar, eru hvattir til þess að sækja um starfið.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Halla Dröfn Þorsteinsdóttir
Tölvupóstur: halla.d.thorsteinsdottir@hsa.is