

Langar þig að ganga til liðs við stærsta lífeyrissjóðs landsins og starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi?
LSR leitar að þjónustulunduðum aðila til að slást í hópinn.
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum og vera góður liðsmaður.
Hvað býður LSR upp á?
• Lifandi vinnuumhverfi með áherslu á fagmennsku, jákvæðni og framþróun.
• Tækifæri til að þróa þína hæfni og vaxa í starfi.
• Sveigjanleika í vinnuumhverfi sem styður við jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
• Heilbrigt vinnuumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi.
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar búið er að ganga frá ráðningu.
LSR er stolt af því að vinna að hagsmunum sjóðfélaga með traust, framsýni og virðingu að leiðarljósi. LSR starfar í samræmi við vottað jafnlaunakerfi og jafnréttisáætlun sjóðsins.
Um vinnustaðinn
LSR er stærsti lífeyrissjóður landsins. Hjá sjóðnum starfa rúmlega 60 manns með fjölbreyttan bakgrunn sem nýta þekkingu sína og hæfileika til að sinna áskorunum í síbreytilegu starfsumhverfi. Hjá LSR njótum við þess að starfa í jákvæðu umhverfi með metnað og bjartsýni að leiðarljósi. Við búum að mikilli reynslu og þekkingu og vitum að það krefst ábyrgðar og framsýni að ávaxta eignir sjóðfélaga með traustum hætti til næstu áratuga. LSR starfar í samræmi við vottað jafnlaunakerfi og jafnréttisáætlun sjóðsins.
Íris Bettý Frederiksen Alfreðsdóttir ráðgjafi hjá HH Ráðgjöf Ráðningarþjónustu veitir frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða í tölvupósti hhr@hhr.is