Aðstoðardeildarstjóri
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Aðstoðardeildarstjóri

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildarstjóra á hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum. Dagvinna í sveigjanlegum vinnutíma með bakvöktum. Starfshlutfall 80-100%.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Gegnir öllum störfum hjúkrunarfræðinga þegar það á við. Í starfi aðstoðardeildarstjóra felst m.a. að halda utan um þjónustu við íbúa heimilisins, afleysing deildarstjóra og skipuleggur starf deildar í samvinnu við deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Almennur hjúkrunarfræðingur. Íslenskt hjúkrunarleyfi. Æskileg er a.m.k. 6 ára reynsla í hjúkrun. Einnig er æskileg reynsla af stjórnun og/eða framhaldsnám í hjúkrun. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. is is

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.07.2026

Nánari upplýsingar veitir
Bríet Magnúsdóttir
Deildarstjóri
Tölvupóstur: briet.magnusdottir@hsa.is

Sigurveig Gísladóttir
Fagstjóri hjúkrunarheimila HSA
Tölvupóstur: sigurveig.gisladottir@hsa.is

SÆKJA UM Egilsstaðir
  • Starf skráð:

    11.Jun 2026

  • Umsóknarfrestur:

    01.Jul 2026

Tegund starfs
  • Fullt starf
  • Hlutastarf
Starfaflokkur
  • Hjúkrunarfræðingur
Hæfni/reynsla
DEILDU STARFINU

Sambærileg störf