Hjúkrunarfræðingur
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Hjúkrunarfræðingur

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í framtíðarstarf á Hjúkrunarheimilið Fossahlíð á Seyðisfirði. Starfshlutfall 80-100% og um vaktavinnu er að ræða. Staðan er laus nú þegar.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Almenn störf hjúkrunarfræðings á deildinni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2026

Nánari upplýsingar veitir
Kristín Guðveig Sigurðardóttir

Tölvupóstur: kristin.g.sigurdardottir@hsa.is

Sigurveig Gísladóttir

Tölvupóstur: sigurveig.gisladottir@hsa.is

SÆKJA UM Seydisfjordur
  • Starf skráð:

    02.Jul 2026

  • Umsóknarfrestur:

    15.Jul 2026

Tegund starfs
  • Fullt starf
  • Hlutastarf
Starfaflokkur
  • Hjúkrunarfræðingur
Hæfni/reynsla
  • Hjúkrunarfræðingur
DEILDU STARFINU

Sambærileg störf