Sjúkraliði
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða sjúkraliða í 80-100% starf á legudeild

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Um er að ræða almenn störf sjúkraliða á legudeild með möguleika á að fara í heimaþjónustu á kvöldin og um helgar Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði. Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega um 300 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði. Í teyminu, sem byggir á samstarfi ríkis og sveitarfélaga, er lögð rík áhersla á góða samvinnu, góðan starfsanda og að virðing sé borin fyrir samstarfsfólki og skjólstæðingum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.08.2026

Nánari upplýsingar veitir
Sigríður María Sigurðardóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: sigridur.m.sigurdardottir@hvest.is

SÆKJA UM Patreksfjörður
  • Starf skráð:

    14.Aug 2026

  • Umsóknarfrestur:

    26.Aug 2026

Tegund starfs
  • Fullt starf
  • Hlutastarf
Starfaflokkur
  • Sjúkraliði
Hæfni/reynsla
DEILDU STARFINU

Sambærileg störf