

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum og er staðan laus frá 1. september eða eftir nánara samkomulagi.
HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 470 manns starfa á fjórtán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Heiða Berglind Svavarsdóttir
Tölvupóstur: heida.b.svavarsdottir@hsa.is
Sigríður Kristinsdóttir
Tölvupóstur: sigridur.kristinsdottir@hsa.is