Sjúkraliði
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vötkum og er staðan laus frá 1. september eða eftir samkomulagi.

HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 470 manns starfa á fjórtán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Unninn eru almenn sjúkraliðastörf á hand- og lyflækningadeild og vinna sjúkraliðar með breiðum hópi skjólstæðinga. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Þetta er kjörið tækifæri fyrir sjúkraliða sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu í hjúkrun.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2026

Nánari upplýsingar veitir
Heiða Berglind Svavarsdóttir

Tölvupóstur: heida.b.svavarsdottir@hsa.is

Sigríður Kristinsdóttir

Tölvupóstur: sigridur.kristinsdottir@hsa.is

SÆKJA UM Neskaupstadur
  • Starf skráð:

    01.Sep 2026

  • Umsóknarfrestur:

    30.Sep 2026

Tegund starfs
  • Fullt starf
Starfaflokkur
  • Sjúkraliði
Hæfni/reynsla
DEILDU STARFINU

Sambærileg störf