

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa í eldhúsið á Ísafirði. Unnið er á dagvöktum frá kl. 7:00 til 14:00 virka daga og aðra hvora helgi. Í eldhúsinu á Ísafirði starfar 11 manna samhentur og glaðlyndur hópur þar sem lögð er áhersla á samvinnu og lausn verkefna.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá. Umsóknum er skilað rafrænt á vefsíðu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 280 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Gestur Ívar Elíasson
Tölvupóstur: eldhus@hvest.is
Sími: 450 4560