

Eldfast ehf óskar eftir að ráða laghentan, jákvæðan og lærdómsfúsan einstakling í fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Um fullt starf er að ræða.
Viðkomandi heldur utan um verk og tekur þátt í öllum almennum störfum.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að tileinka sér nýja þekkingu, er með góða skipulagshæfileika ásamt metnaði og getu til að starfa jafnt sjálfstætt sem og í hópi.
Hvetjum alla áhugasama til að sækja um óháð kyni.
Eldfast ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði eldfastra lausna. Fyrirtækið þjónustar stóriðjufyrirtæki, fiskiðnað og önnur verkefni stór sem smá.