Sumarstarf: Starfsfólk í aðhlynningu
processing...

Atvinnuappið - HH Ráðgjöf

Til baka

Sumarstarf: Starfsfólk í aðhlynningu

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar eftir að ráða starfsfólk í 70-100% starf við aðhlynningu á legudeildinni í sumar.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Aðhlynning og önnur tilfallandi verkefni. Þetta er kjörin staða fyrir þau sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í hvetjandi starfsumhverfi. Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, fagmennsku, metnaði og gleði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
  • Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Metnaður og ábyrgð í starfi
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega 270 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði.

Patreksfjörður er mjög fjölskylduvænn staður, þar eru leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og framhaldsskóladeild ásamt öflugu íþróttastarfi. Börn hafa mikið frelsi og tækifærin til útivistar eru allt í kring.Margvísleg starfsemi er á svæðinu og næg atvinnutækifæri fyrir maka.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026

Nánari upplýsingar veitir
Sara De La Luz C. Gutierrez

Tölvupóstur: sara.d.gutierrez@hvest.is

Árný Magnúsdóttir

Tölvupóstur: arny.magnusdottir@hvest.is

SÆKJA UM Patreksfjörður
  • Starf skráð:

    09.Apr 2026

  • Umsóknarfrestur:

    30.Apr 2026

Tegund starfs
  • Hlutastarf
  • Sumarstarf
Starfaflokkur
  • Aðhlynning
Hæfni/reynsla
  • Umönnun (börn, aldraðir, öyrkjar og aðrir)
DEILDU STARFINU

Sambærileg störf