

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara á heilsugæsluna á Djúpavogi í afleysingu frá 1.júní til 31. ágúst 2026. Starfshlutfall er 100% eða meira skv. samkomulagi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eygerður Ósk Tómasdóttir
Tölvupóstur: eygerdur.o.tomasdottir@hsa.is