Marinar ehf. óskar eftir að ráða einstakling með menntun á sviði matargerðar og/eða með haldbæra starfsreynslu í matvælageiranum.
Starfið felur í sér faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á daglegum rekstri afkastamikils atvinnueldhúss. Um fullt starf er að ræða.
Viðkomandi þarf að búa yfir stjórnunarreynslu og hafa góða þekkingu á HACCP ásamt því að vera úrræðagóður og framúrskarandi leiðtogi.
Viðkomandi hefur yfirumsjón með framleiðslu og vinnslu á hráefnum. Einnig innifelur starfið starfsmannastjórnun eldhússtarfsmanna.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Almenn starfsmannastjórnun, vaktaplön, frammistöðumat og þjálfun starfsmanna
- Skipulagning og gæðastjórnun á framleiðslu í eldhúsi
- Hefur eftirlit með hráefnanýtingu og birgðastýringu
- Framleiðsla á mat og réttum samkvæmt uppskriftum
- Vöruþróun á nýjum réttum og gerð eldunarleiðbeininga
- Innleiðir, viðheldur og framfylgir HACCP kerfi fyrirtækisins eða sambærilegu matvælakerfi
- Skráningar og skjalavinnsla
- Önnur tengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði matreiðslu og/eða reynsla í matvælageiranum
- Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar
- Þekking/Reynsla af vinnu og tækjabúnaði í iðnaðareldhúsum
- Mjög góð skipulags-, áætlanagerðar- og ákvörðunartökuhæfni
- Mjög góð þekking á matvælaöryggi, HACCP kerfum og gæðastjórnun
- Rík hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma
- Skipulagshæfileikar og metnaður í starfi
- Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Íris Bettý Alfreðsdóttir Frederiksen ráðgjafi hjá HH Ráðgjöf Ráðningarþjónustu hefur umsjón með ráðningu í starfið og veitir frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða í tölvupósti hhr@hhr.is